Activity

Skaftafellsfjöll - Toppahopp

Download

Trail photos

Photo ofSkaftafellsfjöll - Toppahopp Photo ofSkaftafellsfjöll - Toppahopp Photo ofSkaftafellsfjöll - Toppahopp

Author

Trail stats

Distance
27.24 mi
Elevation gain
6,463 ft
Technical difficulty
Very difficult
Elevation loss
6,749 ft
Max elevation
4,235 ft
TrailRank 
41
Min elevation
298 ft
Trail type
Loop
Time
2 days 2 hours 27 minutes
Coordinates
6500
Uploaded
June 20, 2010
Recorded
June 2010
Be the first to clap
Share

near Skaftafell, Austurland (Ísland)

Viewed 4838 times, downloaded 31 times

Trail photos

Photo ofSkaftafellsfjöll - Toppahopp Photo ofSkaftafellsfjöll - Toppahopp Photo ofSkaftafellsfjöll - Toppahopp

Itinerary description

Mögnuð en afar erfið og tæknilega krefjandi ferð. Krefst brodda og ísaxa, línu og beltis. Þessi leið er alls, alls ekki fyrir óvana eða lofthrædda. Ég hélt margoft að dagar mínir væru taldir...
Við gengum fyrsta daginn inn í Kjós og tjölduðum þar við mynni Vestra Meingils. Tókum svo afar strembinn 20 klst. dag og gistum aðra nótt í Bæjarstaðaskógi.

Þrjár athugasemdir/leiðréttingar við GPS punktana:
1. Þegar við komum upp í Hnútudalinn gerðum við þau mistök að fara upp á hrygginn syðst, þ.e. undir Vesturhnútu. Það er ekki rétt leið, þar er ekki hægt að komast niður hinum megin. Það þarf að fara upp á hrygginn með því að fara upp skriðuna sem er nyrst í botni dalsins. Athugið einnig að leiðin þaðan og upp á hrygginn hjá Þumli er afar erfið, við ákváðum að nota línu til að feta okkur niður fönn þar til þverunin varð ekki eins brött. Sumir þvera snarbratta skriðuna efst uppi en það þarf að gera með mikilli varúð.
2. Í tilraun til að halda okkur uppi á efstu hryggjum þá gerðum við þau mistök að klöngrast og síga niður rennur í klettahausunum suðvestur af hæsta tindinum sem ber ekkert nafn en er 1315 m. Þar enduðum við að lokum í hálfgerðri sjálfheldu og þurftum að skríða ótryggð eftir snarbrattri skriðu með dauðahrapi beint fyrir neðan þar til við komumst niður á fönn og niður á jökulinn. Mun betri leið er að fara niður á jökulinn á hrygg sem liggur í norðvestur niður af fjallinu, þvera svo jökuldalinn og upp á hrygginn aftur þegar komið er framhjá klettahausunum.
3. Það er smá gat í GPS leiðinni, þar sem rafhlöðurnar tæmdust. Það liggur þó beint við hvernig þar er farið, þar sem hryggurinn er einfaldlega þræddur á efsta punkti, enda mjög greiðfær þar.

........
An amazingly beautiful but extremely difficult hike. Crampoons, axes and lines needed.
Not for the faint hearted or those with vertigo!
Please only use the GPS points as a rough guidance as we once took a wrong route, once got into an extremely thight point of no return and on top of that the GPS ran out of batteries for a small stretch...

Comments

    You can or this trail